Golf

Sergio Garcia klifraði upp í tré og sló þaðan

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Spænski atvinnukylfingurinn Sergio Garcia vakti mikla athygli í gær á Arnold Palmer golfmótinu í gær þegar hann elti kúluna sína upp í tré og sló þaðan sitt annað högg á tíundu holu.

Fyrsta högg Sergio Garcia á 10. holur á Bay Hill vellinum endaði upp í stóru tré og flestir bjuggust við að Spánverjinn tæki bara víti og héldi áfram. Sergio Garcia var ekki alveg tilbúinn og fór að skoða málið betur.

Hann endaði síðan á því að klifra upp í tréð og slá síðan kúluna aftur sig og með annarri hendi. Kúlan endaði inn á miðri braut og áhorfendurnir kunnu vel að meta tilþrif Sergio Garcia. það er hægt að sjá myndband af þessu óvenjulega atviki hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×