Körfubolti

NBA: Kobe Bryant komst upp fyrir Wilt á öðrum fætinum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kobe Bryant.
Kobe Bryant. Mynd/AP
Kobe Bryant leiddi Los Angeles Lakers til sigurs í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þrátt fyrir að vera augljóslega að drepast í öðrum fætinum. Lakers vann þarna mikilvægan sigur því samkeppnisaðilarnir um áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina, Dallas og Utah, unnu líka sína leiki.

Kobe Bryant var með 19 stig og 14 stoðsendingar og hvíldi bara í 23 sekúndur í öllum leiknum þegar Los Angeles Lakers vann 103-98 útisigur á Sacramento Kings. Dwight Howard var með 24 stig og 15 fráköst, Steve Blake skoraði 15 stig og Pau Gasol var með 12 stig og 10 stoðsendingar.

Steve Nash lék aðeins í 1 mínútur og 48 sekúndur áður en hann þurfti að yfirgefa völlinn vegna tognunar aftan í læri.

"Fóturinn er í tómu rugli en annars líður mér vel," sagði Kobe Bryant eftir leikinn en fimmta stig hans í leiknum kom honum upp fyrir Wilt Chamberlain og í 4. sætið yfir stigahæstu leikmenn NBA-deildarinnar frá upphafi.

Randy Foye skoraði 26 stig fyrir Utah Jazz í 116-107 sigri á Brooklyn Nets. Mo Williams og Al Jefferson voru báðir með 20 stig en Utah vann þarna sinn fjórða leik í röð og er nú með sama árangur og Lakers í 8. - 9. sætinu. Utah er þó ofar á betri árangri í innbyrðisleikjum.

Dirk Nowitzki skoraði sigurkörfuna 2,9 sekúndum fyrir leikslok fyrir utan þriggja stiga línuna þegar Dallas Mavericks vann 100-98 endurkomusigur á Chicago Bulls. Dallas var 12 stigum undir í fjórða en Nowitzki skoraði átta síðustu stig leiksins og var hetja sinna manna. Dallas er einum og hálfum leik á eftir Utah og Lakers.

Öll úrslit í NBA-deildinni í körfubolta í nótt:

Atlanta Hawks - Orlando Magic 97-88

Philadelphia 76Ers - Charlotte Bobcats 100-92

Houston Rockets - Los Angeles Clippers 98-81

Minnesota Timberwolves - Memphis Grizzlies 86-99

Milwaukee Bucks - Oklahoma City Thunder 99-109

Utah Jazz - Brooklyn Nets 116-107

Phoenix Suns - Indiana Pacers 104-112

Sacramento Kings - Los Angeles Lakers 98-103

Golden State Warriors - Portland Trail Blazers 125-98



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×