Jörundur, sem er aðeins 14 ára gamall en 190 sm á hæð, gerði sér lítið fyrir og tróð boltanum í körfuna. Afar fátítt er að svo ungir iðkendur geti troðið boltanum í körfuna enda langt í frá allir leikmenn í efstu deild í meistaraflokki sem gætu leikið tilþrif Jörundar eftir.
Tilþrifin má sjá í myndbandinu hér að neðan. Það var Þórhallur Teitsson sem tók upp tilþrifin.