Körfubolti

Rekinn frá Stjörnunni

Sindri Sverrisson skrifar
Austin Price staldraði stutt við í Garðabænum.
Austin Price staldraði stutt við í Garðabænum. Sýn Sport

Stjarnan verður án bandarísks leikmanns þegar liðið mætir Hetti annað kvöld í 2. umferð Bónus-deildar karla í körfubolta eftir að ákveðið var að reka Austin Price.

Þetta hefur Vísir eftir heimildum en hinn 31 árs gamli Price náði því aðeins að spila einn leik í Bónus-deildinni.

Price átti vægast sagt erfitt uppdráttar í þeim leik sem Stjarnan tapaði 90-77 gegn Val á Hlíðarenda, þrátt fyrir að Valsliðið væri án Kristófers Acox og ekki með bandarískan leikmann í sínum röðum.

Price skoraði aðeins sex stig en tók fimm fráköst og gaf eina stoðsendingu á þeim 27 mínútum sem hann spilaði í Stjörnubúningnum.

Samkvæmt upplýsingum Vísis eru Stjörnumenn nú í leit að bandarískum leikmanni í stað Price en ljóst er að sú leit mun ekki skila árangri í tæka tíð fyrir leikinn við Hött annað kvöld í ÞG Verk-höllinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×