Ný heimildarmynd um Dr. J Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 16. apríl 2013 16:45 Julius Erving. Mynd/Nordic Photos/Getty
Julius Erving, betur þekktur sem Dr. J, er einn af þekktustu NBA-leikmönnum sögunnar og nú hefur NBA TV ákveðið að heiðra kappann með því að framleiða heimildarmynd um feril hans í tilefni af 30 ára afmæli fyrsta og eina meistaratitils hans. "The Doctor" mun vera frumsýnd 10. júní næstkomandi eða inn á milli leikja í lokaúrslitum NBA-deildarinnar. Myndin verður 90 mínútna löng og þar má meðal annars sjá svipmyndir frá ferli hans í ABA-deildinni. Dr. J spilaði í ABA-deildinni frá 1971 til 1976 (Virginia Squires og New York Nets) en kom til Philadelphia 76ers árið 1976 og lék með liðinu til ársins 1987. Dr. J er einn af fyrstu alvöru háloftafuglum körfuboltans en þessi 201 sentímetra hái framherji var valinn besti leikmaður NBA-deildarinnar árið 1981. Hann var valinn í Stjörnuleikinn öll ellefu ár sín í NBA-deildinni og mörg af tilþrifum hans eru enn sýnd reglulega á NBA TV. „Ef þú hefur ekki spilað á móti honum eða séð hann þegar hann var upp á sitt besta þá getur þú ekki áttað þig á hversu góður hann var í raun," sagði Pat Riley, forseti Miami Heat, um Julius Erving. Julius Erving skoraði 22,0 stig og tók 6,7 fráköst að meðaltali í 836 leikjum í NBA-deildinni en hann var með 18,4 stig, 7,6 fráköst og 3,4 stoðsendingar að meðaltali í úrslitakeppninni 1983 þegar hann varð meistari í fyrsta og eina skiptið.
NBA Mest lesið Sólveig keppti ólétt og á leið í þungunarrof Sport Marlena vann Bakgarðshlaupið: „Ég hljóp bara“ Sport Fær sér ís í heita pottinum eftir tæplega 250 kílómetra hlaup Sport Haaland kastaði boltanum í hnakkann á Gabriel eftir jöfnunarmark City Fótbolti Ótrúleg og áður óséð tölfræði: Tveir Arsenal-menn áttu enga sendingu Enski boltinn Keane segir Arteta að taka lyfin sín Enski boltinn Sér eftir að hafa valið Val fram yfir KR Íslenski boltinn BBC gefur í skyn að draumur Freys gæti ræst Enski boltinn Clark slegin í augað í frumraun Körfubolti Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Fleiri fréttir Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Sjá meira