Körfubolti

Kobe verður frá í sex til níu mánuði

Kobe birti þessa mynd af sér á Twitter er hann var á leið í aðgerðina.
Kobe birti þessa mynd af sér á Twitter er hann var á leið í aðgerðina.
Þegar Kobe Bryant meiddist fyrir helgi var hann alveg viss um að hann hefði slitið hásin. Sá grunur reyndist réttur hjá honum.

NBA-stjarnan gekkst undir aðgerð vegna meiðslanna og er ljóst að hann verður frá næstu sex til níu mánuði. Í versta falli snýr hann til baka eftir áramót.

Framundan er lokaárið á samningi Bryant við Lakers en hann mun fá litlar 30,5 milljónir dollara fyrir árið.

Efasemdir eru um hversu góður hinn 34 ára gamli Bryant verður eftir þessi meiðsli. Það kemur allt í ljós síðar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×