Körfubolti

Kobe í úrslitakeppnisham

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/AFP
Kobe Bryant skoraði 47 stig þegar L.A. Lakers lagði Portland Trail Blazers 113-106 í NBA-deildinni í nótt.

Skotbakvörðurinn hefur farið á kostum í síðustu leikjum Lakers en 47 stig er það mesta sem hann hefur skorað á leiktíðinni. Kobe virðist vera að finna fjölina þegar lið hans þarf á honum að halda. Eftir sigurinn er Lakers enn með eins leiks forskot á Utah Jazz um síðasta sætið í úrslitakeppni Vesturdeildar.

Kobe spilaði allar 48 mínúturnar og hitti úr 14 af 27 skotum sínum utan af velli. Þess utan skoraði hann út öllum 18 vítaskotum sínum.

Denver Nuggets setti félagsmet í 96-86 heimasigri á San Antonio Spurs. Liðið hefur nú unnið 21 heimaleik í röð en liðið hefur aðeins tapað þremur leikjum á heimavelli í vetur. Tap San Antonio þýðir að liðið deilir nú efsta sæti vesturdeildar með Oklahoma City Thunder.

Phoenix Suns lagði Dallas Mavericks 102-91 á heimavelli en Phoenix hafði tapað tíu leikjum í röð fyrir leikinn í nótt. Dallas er nú 3,5 leikjum á eftir Lakers þegar liðið á fjóra leiki eftir og aðeins kraftaverk getur komið liðinu í úrslitakeppnina.

Ray Allen og Rashard Lewis voru í fararbroddi hjá Miami Heat í 103-98 sigri á Washington Wizards. Gömlu Seattle Supersonics félagarnir fengu að eiga sviðsljósið í fjarveru LeBron James, Dwyane Wade, Chris Bosh og Udonis Haslem sem allir hvíldu vegna meiðsla.

Önnur úrslit

L.A. Clippers 111-95 Minnesota Timberwolves

Sacramento Kings 121-110 New Orleans Hornets

Brooklyn Nets 101-93 Boston Celtics

Orlando Magic 113-103 Bucks

Atlanta Hawks 124-101 Philadelphia 76ers

Detroit Pistons 111-104 Cleveland Cavaliers

Vertu með Sportinu á Vísi á Facebook.

NBA

Tengdar fréttir

Jay-Z ætlar að gerast umboðsmaður NBA-leikmanna

Rapparinn heimsfrægi, Jay-Z, er mikill körfuboltaáhugamaður og hann á hlut í NBA-liðinu Brooklyn Nets. Hann ætlar nú að selja hlut sinn í félaginu svo hann geti einbeitt sér að öðrum hlutum.

Lakers í bílstjórasætið

Kobe Bryant skoraði 23 stig í fjórða leikhluta þegar L.A. Lakers lagði New Orleans Hornets á heimavelli sínum 104-96. Sigurinn kom Kaliforníuliðinu í áttunda sæti Vesturdeildar, hið síðasta sem gefur sæti í úrslitakeppninni.

Gary Payton í frægðarhöllina

Leikstjórnandinn Gary Payton fer fyrir þeim tólf körfuboltahetjum sem vígðar verða inn í frægðarhöll íþróttarinnar vestanhafs sem kennd er við upphafsmann körfuboltans, James Naismith.

Oladipo ætlar í NBA-nýliðavalið

Háskólakörfuboltinn er búinn í ár og nú byrja vangaveltur um hvaða ungstirni ætla sér að fara í nýliðaval NBA-deildarinnar. Margir sterkir leikmenn íhuga að taka slaginn og einn besti leikmaður háskólaboltans í vetur, Victor Oladipo, hefur ákveðið að kveðja Indiana-háskólann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×