Körfubolti

Steig skrefið og kom út úr skápnum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Jason Collins í baráttunni við Dwight Howard.
Jason Collins í baráttunni við Dwight Howard. Nordicphotos/Getty
Körfuknattleiksmaðurinn Jason Collins hjá Washington Wizards í NBA-deildinni er kominn út úr skápnum. Þetta kemur fram á heimasíðu Sports Illustrated.

Collins verður í ítarlegu viðtali í blaðinu sem kemur út í næstu viku. Hann hefur spilað fyrir sex félög á tólf ára ferli sínum í NBA-deildinni. Hann er nú án liðs þar sem samningur hans við Wizards er runninn út.

„Ef ég réði einhverju í þessu þá væri einhver annar búinn að koma út úr skápnum á undan mér," segir Collins. „Það hefur hins vegar enginn gert og því er ég sá fyrsti," segir Collins.

Enginn karlkyns atvinnuíþróttamaður í stóru íþróttagreinunum fjórum vestanhafs (körfubolta, hafnarbolta, amerískum fótbolta og íshokkí) hefur komið út úr skápnum á meðan hann iðkaði enn íþrótt sína fyrr en nú. Opinberun Collins á kynhneigð sinni vekur því mikla athygli.

Jason Collins í leik með Wizards.Nordicphotos/Getty
Collins spilaði í tvígang með liðum sem komust í úrslit NBA-deildarinnar. Þá fór hann í undanúrslit með háskólaliði Stanford á sínum tíma.

Tvíburarbróðir hans, Jarron Collins, spilaði einnig sem miðherji í NBA í nokkrun tíma. Jason segist hafa greint bróður sínum frá samkynhneigð sinni síðastliðið sumar. Þá hefur David Stern, framkvæmdastjóri NBA-deildarinnar, sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann hrósar Collins.

„Jason hefur verið afar virtur leikmaður og liðsfélagi í gegnum feril sinn. Við erum stolt af því að hann hafi tekið þetta mikilvæga skref," segir Stern.

Jason CollinsNordicphotos/Getty
Fleiri hafa fagnað ákvörðun Collins. Þeirra á meðal er Chelsea Clinton, dóttir Bill Clinton fyrrum forseta Bandaríkjanna.

„Eg er afar stolt af vini mínum Jason Collins að sýna þann styrk og hugrekki að opinbera samkynhneigð sína fyrstur allra í NBA," skrifaði Clinton á Twitter. Þau Collins voru góðir vinir þegar þau gengu saman í Stanford.

Nokkrir karlkyns íþróttamenn hafa komið út úr skápnum eftir að ferli þeirra lauk. Þeirra á meðal eru körfuboltamaðurinn John Amaechi og hafnaboltamaðurinn Billy Beam. Collins er sá fyrsti til að gera það á meðan hann er enn að.

Collins ítrekar að hann vilji halda áfram að spila og leitar nú að nýju liði til að leika með á næstu leiktíð. Collins er 34 ára en spekingar vestanhafs telja ólíklegt að hann verði enn í deildinni á næstu leiktíð. Þar komi kynhneigð hans málinu alls ekkert við heldur sé tankurinn einfaldlega orðinn tómur.

Greinina í Sports Illustrated má lesa hér.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×