Di Maria tryggði Real sigur í borgarslagnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. apríl 2013 01:31 Nordic Photos / Getty Images
Real Madrid náði sex stiga forystu á granna sína í Atletico Madrid eftir 2-1 sigur í leik liðanna í spænsku úrvalsdeildinni kvöld. Atletico hefur beðið eftir sigri í Madrídarslagnum í fjórtán ár og þarf að bíða eitthvað lengur. Angel Di Maria skoraði sigurmark Real-manna í seinni hálfleik en liðið er nú ellefu stigum á eftir toppliði Barcelona þegar fimmtán stig eru eftir í pottinum. Cristiano Ronaldo var ekki með vegna meiðsla í dag og er hann tæpur fyrir síðari viðureign Real Madrid gegn Dortmund í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu. Það voru heimamenn í Atletico sem komust yfir þegar að hinn sjóðheiti Radamel Falcao skoraði strax á fjórðu mínútu. Hann skoraði af stuttu færi eftir að Diego Lopez varði aukaspyrnu Gabi. En gestirnir jöfnuðu aðeins níu mínútum síðar og það var með sjálfsmarki Juanfran. Angel Di Maria tók aukaspyrnu að marki og fór boltinn klaufalega af Juanfran og í netið. Atletico byrjaði vel í seinni hálfleik og komst nálægt því að skora. Það voru þó heimamenn sem voru fyrri til og nú sá Di Maria um að skora markið. Real Madrid hafði varla ógnað í seinni hálfleik en liðið komst í sókn á 63. mínútu. Boltinn barst inn á Benzema sem gaf góða sendingu á Di Maria. Hann afgreiddi knöttinn í netið með skoti úr vítateignum. Heimamenn héldu áfram að sækja eftir þetta en náðu ekki að skora jöfnunarmarkið.
Spænski boltinn Mest lesið Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Íslenski boltinn Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Enski boltinn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Fótbolti Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Íslenski boltinn Tefldu á tæpasta vað en leika áfram í Olís-deildinni Handbolti Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Fótbolti Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Fótbolti Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Íslenski boltinn Tryggvi varði Evróputitil með Bilbao Körfubolti Arnar: „Ég er með mann í því, ég tala ekki við þá“ Körfubolti Fleiri fréttir Salah ekki sagt sitt síðasta hjá Liverpool Strax uppselt á Akureyri eftir 24 ára bið Stjarnan - Valur 2 - 0 | Sterkur sigur í fyrsta heimaleik Fékk þrettán leikja bann fyrir hnefahöggið Breiðablik - Fram 2-0 | Sól og Líf í Kópavogi Arsenal fékk ekki annað víti og allt jafnt fyrir seinni slaginn Arsenal lét mæla grasið fyrir leik Magnaður Kristall Máni með þrennu á augabragði gegn toppliðinu Glódís fagnaði í miklum tímamótaleik Mudryk áfrýjaði fjögurra ára banni Varað við ofsaveðri í Madríd meðan stórleikurinn fer fram Zidane kjálkabrotnaði í samstuði Annasamt á skrifstofum Keflavíkur: Conteh kominn að láni og Daníel Guðni verður áfram Sú sigursælasta setur skóna á hilluna Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Neuer eignaðist niðurlægjandi met „Við hlógum bara að því“ Beint rautt spjald fyrir að hylja munninn á HM Metfjöldi marka í undanúrslitum: Sjáðu veisluna sem fór fram í París Guardiola sá langþráða endurkomu Benonýs Breka Gremja í City-mönnum sem spila þrjá leiki á sjö dögum „Stórkostlegur varnarleikur“ í níu marka veislu Lygileg níu marka veisla í París Ipswich sigri frá sæti í ensku úrvalsdeildinni Diljá fljót að leggja upp fyrir mikinn Íslandsvin Modric brotinn en ætti að ná HM Stones rifar seglin hjá City Anton Ari í Kópavogi til 2028 „Þetta eru tvö bestu lið Evrópu“ Illa farið með Þórsara: „Þetta er bara rangt“ Sjá meira