Körfubolti

Heat og Spurs á sigurbraut

Noah og James takast á.
Noah og James takast á.
Meistarar Miami Heat eru komnir með 2-1 forskot í rimmunni gegn Chicago Bulls en liðið vann sannfærandi tíu stiga sigur í nótt.

LeBron James skoraði 25 stig fyrir Miami, Chris Bosh 20 og Dwyane Wade 10. Carlos Boozer stigahæstur hjá Bulls með 21 stig og Nate Robinson skoraði 17.

Tony Parker minnti þá Stephen Curry og Klay Thompson á það í nótt að hann er enn ansi góður í körfubolta er hann skoraði 32 stig og var maðurinn á bak við góðan sigur Spurs á Warriors.

Curry og Thompson voru frábærir í fyrstu tveim leikjunum en nú fóru aðeins niður 12 skot hjá þeim af 37.

Úrslit (staðan í einvíginu):

Chicago-Miami  94-104 (1-2)

Golden State-San Antonio 92-102 (1-2)

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×