Körfubolti

Blaylock ákærður fyrir manndráp af gáleysi

Mookie Blaylock.
Mookie Blaylock.

Fyrrum NBA-stjarnan, Mookie Blaylock, hefur verið kærð fyrir manndráp af gáleysi. Hann er sagður hafa verið valdur að bílslysi þar sem fertug kona lést.

Blaylock var einnig kærður fyrir gáleysislegan akstur og að aka á öfugum vegarhelmingi.

Blaylock sjálfur er alvarlega slasaður eftir áreksturinn sem varð er hann fór yfir á öfugan vegarhelming og bíll hans lenti beint framan á bíl sem kom á móti.

Körfuboltakappinn fyrrverandi lék í 13 ár í NBA-deildinni með New Jersey, Atlanta og Golden State.

NBA

Tengdar fréttir

Mookie berst fyrir lífi sínu

Mookie Blaylock, fyrrum bakvörður í NBA-deildinni, er illa haldinn eftir alvarlegt umferðarslys í gær.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×