Körfubolti

Birdman í banni í nótt

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mynd/AP

Chris Andersen verður ekki með Miami þegar að liðið mætir Indiana í sjötta leik liðanna í úrslitum Austurdeildar NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt.

Andersen og Tyler Hansbrough, leikmanni Indiana, fengu báðir tæknivillu eftir að sá fyrrnefndi grýtti hinum í gólfið í leik liðanna aðfaranótt föstudags.

Eftir að hafa tekið atvikið til skoðunnar ákváðu forráðamenn deildarinnar að dæma Anderson í bann og verður hann því ekki með í nótt. Anderson, eða Birdman eins og hann er kallaður, hefur verið mjög öflugur í úrslitakeppninni og hitt úr fimmtán skotum í röð.

Miami mun án nokkurs vafa sakna Anderson í leiknum í kvöld en hann hefst klukkan 00.30 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×