Fylkir tryggði sér sigur í 1. deild kvenna í dag eftir 2-1 sigur á ÍA í úrslitaleik en bæði liðin voru búin að tryggja sér sæti í Pepsi-deildinni á næsta tímabili.
Anna Björg Björnsdóttir og Ruth Þórðar Þórðardóttir komu Fylki í 2-0 áður en Skagastúlkur náðu að minnka muninn.
Anna Björg Björnsdóttir var þarna að skora sitt 30. mark á Íslandsmótinu í sumar en hún hefur farið á kostum í framlínu Fylkis.
Ragna Lóa Stefánsdóttir gerði því Fylki að meisturum á sínu fyrsta ári í Árbænum.
Fylkiskonur unnu 1. deildina
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar

Mest lesið


Sex leikmenn Íslands í lyfjapróf
Fótbolti



Sjáðu tvennur Eiðs og Nikolaj, aukaspyrnu Kjartans og öll hin mörkin
Íslenski boltinn



„Ég hef aldrei séð aðrar eins tölur“
Fótbolti

