Sagt að vona það besta en reikna með því versta Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. september 2013 13:00 Daníel í leik gegn FH á síðustu leiktíð. Mynd/Vilhelm „
Ég vissi strax að eitthvað mikið hefði gerst,“ segir Daníel Berg Grétarssonar, leikstjórnanda HK. Önfirðingurinn lenti illa í einni sókn HK í tapleik gegn Fram í Safamýri í gærkvöldi. „Ég var að stökkva upp, losað mig við boltann og fékk smá snertingu þegar ég var að lenda,“ segir leikstjórnandi HK-inga. Hann segir löppina fyrir neðan hné hreinlega hafa færst úr stað. „Ég vissi strax að eitthvað mikið hefði gerst,“ segir Daníel Berg sem var fluttur upp á spítala í gærkvöldi. Hann var kominn heim þegar fréttamaður heyrði í honum hljóðið fyrir stundu. „Hnéð á mér er tvöfalt núna,“ segir Daníel Berg en af þeim sökum getur hann ekki farið í myndatöku fyrr en í næstu viku. Hann segist hafa getað hreyft sig aðeins á hækjum í gærkvöldi en ekki getað það í dag sökum verkja. „Læknarnir sögðu mér að vona það besta en að búast við því versta,“ segir Daníel um alvarleika meiðslanna. Ekki verði hægt að fá skýr svör fyrr en eftir myndatöku í næstu viku. „Þeir sögðu samt að þegar bólgan væri svona mikil væri yfirleitt eitthvað slitið.“ Daníel hefur spilað á rifnum liðþófa undanfarið ár sem hann segir hafa sloppið. Það gæti þó hafa haft áhrif á meiðslin sem hann varð fyrir í gær. „Ég var oft orðinn helvíti aumur í fyrra. Svo fór maður á sjóinn á milli og þetta hjaðnaði.“ Ljóst er að meiðslin eru mjög slæmar fréttir fyrir HK en Daníel er lykilmaður liðsins. Það missti fjölmarga leikmenn fyrir tímabilið en deildin stendur illa fjárhagslega. Félagið greinir engin laun ef marka má viðtal við varaformann handknattleiksdeildarinnar fyrir nokkrum vikum í Fréttablaðinu.
Olís-deild karla Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn Baulað á Trump í New York Körfubolti Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Eins og að fá spark frá hesti beint í brjóstkassann Fótbolti Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Körfubolti Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Körfubolti Fleiri fréttir Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sjá meira