Tónlist

Skepna og Nykur rokka með kökum í kvöld

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Hljómsveitin Skepna.
Hljómsveitin Skepna.
Hljómsveitirnar Skepna og Nykur spila á tónleikum í kvöld í tónleikaröðinni Kaffi, kökur og rokk&ról.

Tónleikaröðin, sem er á vegum SÁÁ, hóf göngu sína fyrir þremur árum og hafa margar vinsælar hljómsveitir og listamenn komið þar fram. Má þar nefna John Grant, Of Monsters and Men, Mugison og Bubba Morthens.

Tónleikarnir eru haldnir í Edrúhöllinni, húsi SÁÁ, Efstaleiti 7, og er miðaverð þúsund krónur. Tónleikarnir hefjast klukkan 20.30 en húsið opnar kl. 20.00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×