Körfubolti

Nash verður frá í tvær vikur

Steve Nash.
Steve Nash.
Leikstjórnandi LA Lakers, Steve Nash, fór meiddur af velli í leik liðsins gegn Minnesota á sunnudag. Hann sagði strax þá að honum litist ekkert sérstaklega vel á blikuna.

Nash, sem orðinn er 39 ára og er elsti leikmaður deildarinnar, var í skoðun hjá læknum Lakers í gær og þeir reikna með því að hann verði frá í tvær vikur.

Það þýðir að hann muni missa af sex leikjum. Fyrir var hann búinn að missa af tveimur af fyrstu átta leikjum liðsins í vetur.

Nash er meiddur í bakinu en hann er enn að glíma við meiðsli í baki sem hann varð fyrir í upphafi síðustu leiktíðar.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×