Körfubolti

Rose fór meiddur af velli

Derrick Rose.
Derrick Rose.
Það fór um marga stuðningsmenn Chicago Bulls í nótt þegar stjarna liðsins, Derrick Rose, haltraði af velli undir lok leiksins gegn Cleveland.

Rose er nýbyrjaður að spila aftur en hann var frá í eitt og hálft ár vegna hnémeiðsla.

Sem betur fer fyrir Rose þá var það ekki hnéð sem gaf sig. Hann tognaði aðeins lítillega aftan í læri.

"Þetta er ekkert stórmál. Ég verð vonandi orðinn betri eftir tvo daga. Þetta er ekkert til þess að velta sér upp úr," sagði Rose eftir leik.

Læknar Chicago-liðsins ætla ekki að tefla á tvær hættur og verður leikmaðurinn skoðaður í dag. Hann verður klárlega látinn hvíla í einhverja daga.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×