Langan tíma tók að koma Martin aftur í fingurlið Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 28. nóvember 2013 21:21 Martin skoraði 13 stig í kvöld. „
Þetta var mjög vont. Ég neita því ekki. Þægilegt samt þegar hann small í,“ sagði Martin Hermannsson eftir sigur KR-inga á Þórsurum í Domino's-deild karla í körfubolta í kvöld. Bakvörðurinn fór úr fingurlið í síðari hálfleik og virtist ætla að taka óratíma að kippa honum í liðinn. „Það tók 15-20 mínútur,“ sagði Martin í leikslok en um litla fingur á vinstri hönd var að ræða. Svo fór að kalla þurfti til læknismenntaðan mann úr hópi áhorfenda til að klára dæmið. Þótt sársaukinn hafi verið mikill sagðist Martin ekki hafa fellt nein tár. „Maður reyndi að halda cool-inu,“ sagði kappinn léttur. Sigur KR-inga var afar þægilegur í kvöld og lykilmenn á borð við Martin og Pavel Ermolnskij þurftu óvenjulítið að hafa sig í frammi. Martin segist hafa átt von á sterkara Þórsliði en eftir skrýtnar upphafsmínútur hafi sínir menn fundið taktinn og aldrei verið spurning. KR-ingar eru ósigraðir í deildinni og líklegir til afreka. „Þetta verður aldrei 'walk in the park'. Við finnum samt alveg fyrir pressunni. Hún er alltaf í Vesturbænum. Fólk vill titil og við ætlum að taka hann. Eftir að við duttum út úr bikarnum erum við enn ákveðnari í að taka Íslandsmeistaratitilinn.“Umfjöllun um leikinn í kvöld má sjá hér.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Þorsteinn Roy fyrstur í mark annað árið í röð Sport Uppgjörið: Vestri í úrslit í fyrsta skipti Íslenski boltinn Ekki pláss fyrir Rúnar í flugvélinni: „Ég fórnaði mér í þetta“ Íslenski boltinn Sigurvegarinn Þorsteinn: „Það má ekki á Íslandi“ Sport „Síðasti leggurinn var helvíti þungur“ Sport „Þorsteinn er allt of lengi að bregðast við“ Fótbolti Leik lokið: Svíþjóð 4 - 1 Þýskaland | Úrslitaleikur um efsta sætið Fótbolti Hvaðan koma peningarnir sem Tottenham er að eyða? Fótbolti Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Körfubolti Landslið Íslands í golfi gerði það gott á EM Sport Fleiri fréttir Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn Sjá meira