Körfubolti

Kobe ætlar að spila fyrir mánaðarmót

Kobe er hann meiddist í apríl.
Kobe er hann meiddist í apríl. vísir/getty
Kobe Bryant, leikmaður LA Lakers, er heldur betur á góðum batavegi og er farinn að æfa með félögum sínum af fullum krafti.

Hann stefnir nú á að spila sinn fyrsta leik á tímabilinu fyrir lok mánaðarins.

"Ég tel að það sé vel mögulegt," sagði Kobe en Lakers á eftir að spila fimm leiki í þessum mánuði.

Bryant meiddist illa í byrjun apríl og þá var jafnvel ekkert búist við honum aftur á völlinn fyrr en á næsta ári.

"Ég er ekkert heftur en þarf að styrkja mig betur á ákveðnum stöðum. Ég get samt aðlagað minn leik að meiðslunum og samt spilað vel."

Þjálfari liðsins, Mike D'Antoni, segist ekki leggja neina áherslu á að fá Kobe út á völlinn sem fyrst. Hann vill fara varlega.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×