Körfubolti

NBA í nótt: Sextándi sigur Indiana

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Indiana Pacers heldur áfram að gera það gott í NBA-deildinni í körfubolta en liðið vann í nótt sinn sextánda sigur í fyrstu sautján leikjum sínum á tímabilinu.

Indiana vann LA Clippers, 105-100, þar sem Paul George fór mikinn en hann var alls með 27 stig og tólf fráköst. David West skoraði 24 stig, þar af fjórtán í þriðja leikhluta.

Jamal Crawford var með 20 stig fyrir Clippers og Chris Paul sautján. Blake Griffin var með sextán stig og tólf fráköst.

Þetta var fyrsti leikur Clippers eftir að liðið fékk þær fregnir að JJ Redick verður frá næstu 6-8 vikurnar þar sem hann er með brotið bein og rifið liðband í skothöndinni sinni.

Miami vann Charlotte, 99-98. Chris Bosh skoraði þrettán stig í röð fyrir Miami á lokamínútum leiksins, þar af þrjár þriggja stiga körfur.

Þetta var tíundi sigur Miami í röð en Bosh kom Miami tveimur stigum yfir þegar rúm mínúta var eftir af leiknum. LeBron James skoraði 26 stig og Bosh alls 22 stig.

Oklahoma City vann Minnesota, 113-103. Kevin Durant var með sína fyrstu þreföldu tvennu á tímabilinu en hann var með 32 stig, tíu fráköst og tólf stoðsendingar.

Oklahoma City hefur nú unnið sjö leiki í röð, er í efsta sæti Vesturdeildarinnar og hefur unnið alla níu heimaleiki sína þetta tímabilið. Þetta er lengsta sigurganga félagsins síðan 2004 en þá hét það Seattle Supersonics.

Golden State vann Sacramento, 115-113. Stephen Curry skoraði 36 stig fyrir Golden State, þar af tólf í fjórða leikhluta. Hann var með tíu stoðsendingar þar að auki.

Detroit vann Philadelphia, 115-100. Þar átti Andre Drummond stórleik en hann var með 31 stig, nítján fráköst og sex stolna bolta. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem nær álíka framlagi síðan að Hakeem Olajuwon árið 1990.

Úrslit næturinnar:

Toronto - Denver 98-112

LA Clippers - Indiana 100-105

Detroit - Philadelphia 115-100

Sacramento - Golden State 113-115

Miami - Charlotte 99-98

Oklahoma City - Minnesota 113-103

New York Knicks - New Orleans 99-103

LA Lakers - Portland 108-114

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×