Eygló komst í úrslit Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 15. desember 2013 11:30 Mynd/Daníel
Eygló Ósk Gústafsdóttir náði sjöunda besta tímanum í undanrásum 200 m baksunds á EM í 25 m laug í dag og syndir því til úrslita í greininni síðdegis. Tíu efstu komust beint áfram í úrslitin í greininni en Eygló synti á 2:08,49 mínútum sem er rúmum tveimur sekúndum frá Íslandsmeti hennar. Hún á því talsvert inni fyrir úrslitasundið. Alls tóku 23 keppendur þátt í undanrásunum í morgun en Daryne Zevina frá Úkrína náði besta tímanum. Hún synti á 2:04,06 mínútum. Úrslitasundið hefst klukkan 16.43 og verður sýnt beint frá keppninni á Eurosport. Eygló komst einnig í úrslit í 100 m baksundi og hafnaði í áttunda sæti. Hún komst í undanúrslit í 50 m baksundi þar sem hún varð fimmtánda. Hún er eini íslenski keppandinn sem komst áfram úr undanrásum en aðrir hafa lokið keppni. Kristinn Þórarinsson varð í 47. sæti af jafn mörgum keppendum í 200 m bringusundi. Hann synti á 2:18,36 sem er tæpum fjórum sekúndum frá hans besta. Daníel Hannes Pálsson keppti í 200 m skriðsundi og kom í mark á 1:52,89 mínútum. Hann var aðeins 0,25 sekúndum frá hans besta tíma en hafnaði í 76. sæti af 81 keppanda. Inga Elín Cryer var rúmum tveimur sekúnum frá hennar besta í 200 m skriðsundi. Hún synti á 2:03,33 mínútum og varð í 39. sæti af 42 keppendum. Karlasveit Íslands keppti í 4x50 m skriðsundi og hafnaði í sextánda og neðsta sæti á 1:33,82 mínútum. Það dugði ekki til að bæta Íslandsmetið í greininni.
Sund Mest lesið Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Enski boltinn Bruno til bjargar Enski boltinn „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Íslenski boltinn Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Fótbolti Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Fótbolti Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga Fótbolti Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Fótbolti Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Fótbolti Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Íslenski boltinn Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Handbolti Fleiri fréttir Markvörðurinn Mary fyrst á Madame Tussauds Guðný á leið í aðgerð og missir af næsta verkefni landsliðsins Jón Daði lagði upp mark í sínum fyrsta byrjunarliðsleik Fyrirliðinn Glódís Perla og Bayern enn með fullt hús stiga „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Bruno til bjargar Arsenal í bílstjórasætið eftir stórsigur á Juventus Kristófer áfram í Kópavogi Murphy um Coote: „Hann er búinn“ Ten Hag gæti farið strax til Ítalíu Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Ósigraður Kolbeinn kominn með næsta andstæðing Ödegaard strax aftur heim Lampard sótti um starfið hjá Coventry Damir á leið til Asíu Blaðamannafundur HSÍ blásinn af á elleftu stundu Martin missir af landsleikjunum, Bjarni kemur inn og Viðar í stað Pavels Vill vera áfram í Kópavogi en útilokar ekkert Angulo látinn aðeins tuttugu og tveggja ára að aldri „Viðurkennt að svona gerum við ekki“ Liverpool langlíklegast til að verða meistari samkvæmt ofurtölvunni „Eitthvað sem maður mun muna eftir alla ævi“ Hlín fór á kostum og finnur fyrir áhuga: „Hef ekki tekið ákvörðun“ Hattarmenn senda Kanann heim Ísak hættur með ÍR Hareide segir Ødegaard milli steins og sleggju Stuðningsmenn Liverpool rifja upp gamlar syndir Coote Lá nánast við skilnaði fyrir úrslitaleikinn Lineker hættir með Match of the Day eftir tímabilið Elanga ekki í landsliðshóp Svía og neitar að svara þjálfaranum Sjá meira