ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Sindri Sverrisson skrifar 21. október 2026 11:33 Búið er að spila síðasta leikinn á Elkem-vellinum sem grasvelli og ÍA mun í framtíðinni spila sína heimaleiki á gervigrasi. Félagið þarf þó að leita annað stóran hluta næstu leiktíðar. Samsett/Anton/Diego Skagamenn vinna nú að því að gera aðalfótboltavöll sinn að gervigrasvelli og ljóst er að þeir munu þurfa að leita í annað bæjarfélag til að spila sína leiki í Bestu deildinni á næstu leiktíð. Þeir fengu ákúrur frá mótanefnd KSÍ fyrir að hafa gert völlinn óleikhæfan fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar í ár. „
Þetta verður bylting fyrir félagið,“ segir Ingimar Elí Hlynsson, framkvæmdastjóri KFÍA, um nýja gervigrasvöllinn sem lagður verður á næsta ári. Með tilkomu hans verði aðstaða til að spila fótbolta á Akranesi yfir vetrarmánuðina allt önnur. Óvissa ríkir hins vegar um hve langan tíma mun taka að leggja nýjan völl og til að draga úr þeirri óvissu voru gerðar mælingar í nýafstöðnu landsleikjahléi, þar sem borað var ofan í völlinn til að kanna hve langt væri niður á fast land. Ingimar segir þetta gert til að meta hvort setja þurfi „fljótandi púða“ undir nýja völlinn en það sé óþarfi ef nógu stutt sé niður á fast land. „Þetta gæti stytt framkvæmdatímann hérna um 4–6 mánuði. Þetta eru mjög mikilvægar upplýsingar fyrir okkur og Akranesbæ að hafa fyrir sína áætlanagerð.“ Prufuholurnar á vellinum gerðu hann hins vegar óleikhæfan fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar, þegar ÍA tekur á móti Keflavík á laugardaginn, og hefur mótanefnd KSÍ samþykkt að sá leikur fari fram í Akraneshöllinni. Í grein Fótbolta.net í dag er vísað í bréf frá mótanefnd KSÍ til ÍA og Keflavíkur þar sem vinnubrögð Skagamanna eru hörmuð. Þar segir mótanefnd það „mannanna verk“ að völlurinn sé ekki leikhæfur og gagnrýnir hún samráðsleysi við KSÍ. Nefndin var ekki einhuga varðandi það að samþykkja að leikurinn færi fram í Akraneshöllinni. Mikilvægar mælingar til að halda verkefninu á hreyfingu Ingimar sýnir viðbrögðum nefndarinnar skilning en segir forráðamenn ÍA hafa talið það mikilvægt að bíða ekki með að taka prufuholurnar: „Við erum í vinnu með bænum við að koma upp gervigrasvelli á næsta ári og sú vinna er búin að vera í gangi í nokkra mánuði. Það skapaðist töluvert hlé vegna landsleikjanna og þá sáum við færi á að taka prufuholur sem geta skorið úr um hversu kostnaðarsamt verkefnið verður og hversu langur framkvæmdatíminn verður. Þessar mælingar eru mjög mikilvægar til að halda verkefninu gangandi, á sama tíma og bærinn er í framkvæmda- og fjárhagsáætlun. Því miður var þessi vinna við völlinn umtalsvert meiri en við gerðum ráð fyrir. Í fyrstu ætluðum við bara að taka holur utan við leikflötinn en síðan var það mikilvægt fyrir verkfræðistofuna að tekin yrðu líka sýni inni á vellinum til að fá betri niðurstöður um rúmmálið í jarðveginum undir vellinum. Á þessum tíma var völlurinn mjög blautur og þoldi illa að fá tæki inn á sig. Núna er hann óleikhæfur og þess vegna sóttum við um að spila inni í Akraneshöllinni,“ segir Ingimar. Skagamenn eru í 4. sæti fyrir lokaumferð Bestu deildarinnar og geta náð sínum besta árangri frá árinu 2007 ef þeir enda ekki neðar.vísir/Anton En vissu Skagamenn ekki einfaldlega að þeir væru með þessum framkvæmdum að gera völlinn óleikhæfan fyrir lokaumferðina? „Nei, við vissum það svo sem ekki fyrir fram. En svo er það þannig að þegar það er meðbyr með svona mikilvægri framkvæmd í bæjarpólitíkinni þá er mikilvægt að halda því verkefni á hreyfingu í stað þess að bíða í 4-5 vikur. Við ætluðum í þessar framkvæmdir um leið og síðasta leik lauk fyrir landsleikjahléið en því miður var verktakinn í öðrum verkefnum með Vegagerðinni. Mér finnst að það megi horfa á heildarmyndina. Þarna er íþróttafélag sem sér fram á að geta bætt sína aðstöðu umtalsvert og er að horfa til framtíðar með að koma upp heilsársaðstöðu,“ segir Ingimar. Heimaleikir ÍA í Ólafsvík eða Mosfellsbæ? Eins og fyrr segir verður nýr gervigrasvöllur bylting fyrir fótboltann á Akranesi en sú bylting mun hafa mikil áhrif á næstu leiktíð. Ingimar segir að í besta falli verði hægt að byrja að spila á nýjum gervigrasvelli um mánaðamótin júní-júlí og mögulega verða engir leikir í Bestu deildinni á Akranesi alla næstu leiktíð heldur mun ÍA spila í öðru bæjarfélagi. Ekki er hægt að leggja gervigras nema á tímabilinu apríl-september. „Svona gervigrasvöllur er það sem vantar upp á hér. Félagið okkar hefur þróast alveg svakalega, ekki bara meistaraflokkarnir heldur öll okkar starfsemi. Yngri flokkarnir hafa stækkað frá 300 iðkendum upp í tæpa 800 á örfáum árum og eina vetraraðstaðan sem við höfum er Akraneshöllin okkar. Hún er löngu sprungin. Þetta verður bylting fyrir félagið. Við höfum þegar tekið innanhússaðstöðu félagsins í gegn, klefana, líkamsræktina og íþróttahúsið, á síðustu tveimur árum og með nýjum gervigrasvelli verðum við með eina bestu aðstöðuna á landinu,“ segir Ingimar. Hann segir ekki ljóst hvar ÍA muni spila sína heimaleiki á næstu leiktíð. „Við erum að skoða það núna. Ég hugsa að það verði allavega ekki Akraneshöllinni,“ segir Ingimar hlæjandi. „Við þurfum bara að skoða það, hvort sem það verður Ólafsvík, Borgarnes eða Mosfellsbær eða annars staðar,“ segir Ingimar en bætir við að líklegast sé að farið verði í samstarf við félag á höfuðborgarsvæðinu.
Besta deild karla ÍA Mest lesið Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Fótbolti Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Enski boltinn „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Fleiri fréttir ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Bjarni Jó hættur Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Sjá meira