Fyrir viku var myndbandið valið á forsíðu hinnar vinsælu Vimeo-síðu og yfir fjörutíu þúsund manns sáu það þar. Þá hafa umfjallanir um myndbandið birst á hönnunarsíðunum Dezeen.com og The Creators Project sem báðar hæla verkinu. Þetta er fyrsta tónlistarmyndbandið sem Harald gerir en hann er menntaður rafmagns-og tölvuverkfræðingur.
"Gerð myndbandsins var frekar einföld. Það var tekið upp á einni kvöldstund, að mestu í stofunni heima. Fyrst tók ég upp söngvarann og leikkonuna í stúdíói hjá mér. Svo fór ég heim og varpaði myndbandinu á tómar hillurnar," segir Harald en þannig mynduðust skemmtilegir skuggar. "Það er notkunin á hillunum sem hefur vakið athygli í hönnunarheiminum. Mér datt þetta nú bara í hug einn daginn þar sem ég sat inn í stofu og horfði á hillurnar. Mig grunaði að þetta myndi vekja einhverja athygli."
Hér að ofan getur þú séð myndskeiðið með því að smella á hlekkinn „Horfa á myndskeið með frétt“ en þú getur líka séð það á YouTube.

"Ég fór í framhaldsnám til Tókýó þar sem ég sérhæfði mig í tölvusjón, innan rafmagns-og tölvuverkfræðinnar, sem meðal annars er tæknin sem er notuð til að þróa vélmenni og sjálfvirka bíla. Ég reyni að nýta þessa tækni á skapandi hátt. Nú vona ég bara að lagið sjálft fái jafn mikla athygli og myndbandið því það er sannkallaður poppsmellur."
Tengdar greinar:
Nýtt myndband Baaregaard & Briem frumsýnt á Vísi.
