Golf

Tiger og Obama sigursælir í golfinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger Woods
Tiger Woods
Tiger Woods spilaði merkilegan golfhring um síðustu helgi en hann fékk þá tækifæri til þess að spila með sjálfum Bandaríkjaforseta, Barack Obama, en þeir spiluðu saman í Flórída og fengu engir fjölmiðlamenn að fylgjast með golfinu.

Með í hollinu voru Jim Crane, eigandi hafnaboltaliðsins Houston Astros, og Ron Kirk, fyrrum borgarstjóri Dallas.

Mikil leynd var yfir golfhringnum og gaf skrifstofa Bandaríkjaforseta engar upplýsingar um hann. Tiger mátti augljóslega ekki heldur segja mikið.

„Ef hann fer að eyða meiri tíma á golfvellinum þegar forsetatíð hans lýkur þá held ég að hann geti orðið nokkuð góður," sagði Woods í gær. Hann mátti þó segja að hann hefði verið í liði með Obama og þeir hefði unnið þá Crane og Kirk.

Woods tekur nú þátt í Match Play-meistaramótinu og spurning hvort hann nái að fylgja eftir góðum hring með forsetanum?




Fleiri fréttir

Sjá meira


×