Tónlist

Jakobínarínumenn snúa aftur

Grísalappalísa hefur gefið út lagið Lóan er komin. Það er tekið af fyrstu plötu hljómsveitarinnar, Ali, sem er væntanleg á vegum 12 Tóna á næstunni.

Hljómsveitin er skipuð Gunnari Ragnarssyni og Sigurði Möller Sívertsen, fyrrverandi meðlimum Jakobínarínu, Bergi Thomas Anderson, bassaleikara Oyama og Sudden Weather Change, og þeim Alberti Finnbogasyni og Tuma Árnasyni úr The Heavy Experience.

Sveitin hélt tónleika á Kexinu í gærkvöldi þar sem var leikið efni af plötunni.

Hægt er að fylgjast með sveitinni hér á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×