Tónlist

Agent Fresco fékk hálfa milljón í styrk

Rokkararnir í Agent Fresco fengu hálfa milljón fyrir útgáfutónleika sína.
Rokkararnir í Agent Fresco fengu hálfa milljón fyrir útgáfutónleika sína.
Ýlir – tónlistarsjóður Hörpu fyrir ungt fólk hefur tilkynnt um stuðning við tíu ný tónlistarverkefni sem fara fram í Hörpu á árinu og nemur upphæðin 4,5 milljónum króna.

Hæstu styrkina hlutu Alþjóðlega tónlistarakademían, eða 1,2 milljónir króna, og tónleikarnir Tónsnillingar morgundagsins, eða eina milljón.

Tónlistarhátíðin Wacken Metal Battle á Íslandi hlaut hálfa milljón í styrk, rétt eins og hljómsveitin Agent Fresco vegna útgáfutónleika sinna. Á meðal annarra styrkþega eru rapparinn Emmsjé Gauti og raftónlistartónleikarnir Babel til heiðurs Biogen.

Ýlir styður nú þegar við Nótuna, uppskeruhátíð tónlistarskóla alls staðar að af landinu í Hörpu, og Músíktilraunir, sem í rúmlega þrjá áratugi hefur verið vettvangur fyrir ungar og efnilegar hljómsveitir og listamenn til að koma sér á framfæri. Músíktilraunir fóru í ár í fyrsta sinn fram í Hörpu dagana 17.-23. mars og lokahátíð Nótunnar í ár mun fara fram í Hörpu í annað sinn 14. apríl.

Ýlir var stofnaður í lok árs 2010 þegar Menningarsjóði SPRON var slitið með úthlutun til ýmissa mennta-, menningar- og góðgerðarmála.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×