Tónlist

Sunday Times hrífst af Hjaltalín

Freyr Bjarnason skrifar

Smáskífulag Sigríðar Thorlacius og félaga í Hjaltalín, Crack in a Stone, fær góða dóma hjá breska blaðinu The Sunday Times.

Þar segir að lagið sé silkimjúkur, flókinn en fallegur forsmekkur fyrir nýju plötuna þeirra. Þar á blaðamaðurinn við Enter 4 sem kemur út um allan heim 26. ágúst. Smáskífulagið kemur út á 7 tommu vínyl 24. júní.

Platan kom út hér heima við góðar undirtektir rétt fyrir jól og kom í síðustu viku út á vínyl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×