Tónlist

Halda minningu vinar á lofti með tónleikum

Sara McMahon skrifar
Meðlimir Skáta heiðra minningu látins vinar með tónleikum á Faktorý í kvöld. Björn Kolbeinsson lést í köfunarslysi í desember í fyrra.
Meðlimir Skáta heiðra minningu látins vinar með tónleikum á Faktorý í kvöld. Björn Kolbeinsson lést í köfunarslysi í desember í fyrra. Mynd/Úr einkasafni
„Þetta eru allt vinir Björns og hljómsveitir sem Skátar spiluðu mikið með hér áður fyrr. Okkur langaði að heiðra minningu látins félaga með því að halda gott partí. Þetta verður engin erfisdrykkja heldur falleg og skemmtileg stund,“ segir Benedikt Reynisson, gítarleikari hljómsveitarinnar Skáta. Sveitin stendur fyrir tónleikum á Faktorý í kvöld til heiðurs Birni Kolbeinssyni, sem betur er þekktur sem Bjössi Skáti. Hann lést í köfunarslysi í Silfru á Þingvöllum þann 28. desember síðastliðinn.

Aðspurður segir Benedikt að lagalisti kvöldsins samanstandi fyrst og fremst af lögum Skáta. „Við tökum Skáta-lög og svo smá spuna til heiðurs Bjössa,“ segir hann.



Benedikt Reynisson
Auk Skáta munu fjórar aðrar sveitir stíga á svið í kvöld og halda uppi minningu Björns.

Aðgangseyrir er þúsund krónur og mun ágóðinn renna til Kvennaathvarfsins. „Okkur þótti meira við hæfi að styrkja gott málefni en að styrkja okkur sjálfa. En fyrst og fremst er þetta í anda Bjössa, hann var meðvitaður um samfélagið í kringum sig.“

Tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 22.30 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×