Aðspurð segir Birta að henni þyki skemmtilegast að syngja lög eftir tónlistarmanninn Bruno Mars. „Ég tek helst lög með Bruno Mars og róleg lög eftir Rihönnu. En helstu fyrirmyndir mínar eru krakkar eins og Carly Rose Sonenclar úr X-Factor,“ segir hún.
Útgáfa Birtu á laginu hefur ekki ratað í útvarp en söngkonan unga vonar að jólalag sem hún hyggst taka upp síðar á árinu fái útvarpsspilun. „Ég ætla að taka upp jólalag sem ég söng með leikfélaginu síðust jól. Það er lítil útvarpsstöð hér í Vestmannaeyjum og vonandi fær lagið spilun þar.“
Söngur er ekki eina áhugamál Birtu því hún tekur einnig virkan þátt í starfi Leikfélags Vestmannaeyja, spilar hand- og fótbolta með ÍBV og stundar hestamennsku. „Ég er hægri skytta í handboltanum og framherji og kantur í fótboltanum. Ég er Íslandsmeistari í handbolta og ef ég þyrfti að velja á milli þá yrði handboltinn klárlega fyrir valinu,“ segir Birta.
Líkt og sönnum Eyjamanni sæmir tekur Birta fullan þátt í hátíðahöldum helgarinnar og þegar blaðamaður náði tali af henni í gær var hún á leið í málningarvinnu í Herjólfsdal um kvöldið. „Frænka mín og frændi sjá um málningarvinnuna og ég og vinkonur mínar höfum hjálpað til á kvöldin. Ég hlakka mikið til helgarinnar, það er alltaf gaman á Þjóðhátíð,“ segir hún að lokum.