Skoðun

Breytir sambandið samningum?

Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir skrifar
Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga og bæjarfulltrúi á Ísafirði, skrifar grein í Fréttablaðið í gær um skólamál og kjör kennara. Síðastliðin tíu ár hef ég verið talsmaður þess í Reykjavíkurborg að breyta kjarasamningum kennara, talið þá vera úrelta og hvorki í samræmi við kröfur til starfa háskólamenntaðra starfsmanna né skólaþróunar. Ég hef sagt að stagbættur samningur sem grundvallast á stundatöflum dugi ekki lengur.

Reykjavíkurborg á að vera leiðandi í þessari umræðu enda langstærsta sveitarfélagið. Bara á þessu ári aukast útgjöld borgarinnar um 100 milljónir, sem jafngildir launum 16 kennara, vegna kennsluafsláttar kennara sem eru komnir yfir ákveðinn aldur. Reykjavíkurborg á með skýrum hætti að setja stefnuna á miklu sveigjanlegra umhverfi fyrir kennara og skólastjórnendur – og taka til umræðu einhvers konar framgangskerfi í líkingu við það sem hjúkrunarfræðingar nota með góðum árangri. Þannig getum við umbunað kennurum góð störf með launaflokkahækkunum.

Grein Halldórs gefur okkur tilefni til að hugleiða hvað Samband íslenskra sveitarfélaga hefur raunverulega gert undanfarin ár í þessu sambandi. Sambandið sló út af borðinu mögulegt samkomulag um sólarlagsákvæði á kennsluafslætti.

Ekkert hefur hreyfst í átt að sveigjanlegri kjarasamningum nema síður sé og traustið á milli sambandsins og kennara er við frostmark. Ég fagna því ef breyting verður á því enda löngu tímbært að leggja fram skýra stefnu og fara að draga upp nýjan samning. Það er ekki hægt að stagbæta núverandi samning. Markmiðið á að vera að hækka laun kennara umfram vísitölu en losa um leið úreltar vinnuskilgreiningar.

Reykjavíkurborg á að vera leiðandi í að bjóða upp á meiri sérhæfingu og sveigjanleika með minni miðstýringu borgarinnar sjálfrar og meiri völd til skólastjóra. Við eigum að búa til samning sem miðar við að laun kennara og verkefni séu í samræmi við aðra háskólamenntaða starfsmenn.

Sveitarfélög þurfa að fjárfesta í þessum breytingum. Það er tímabært að virkja krafta kennara í sveigjanlegu umhverfi launa og starfsskilyrða. Að einbeita sér að þeirri stefnu að „reka kennsluna með færri kennurum…“ eins og Halldór nefnir er kolrangt markmið og mun valda úlfúð meðal kennara.




Skoðun

Sjá meira


×