Tónlist

Tónleikar við tjörnina í kvöld

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Útgáfutónleikar Johnny and the Rest fara fram í Tjarnarbíói.
Útgáfutónleikar Johnny and the Rest fara fram í Tjarnarbíói. mynd/Gunnar Már Pétursson
Í tilefni útgáfu á annarri breiðskífu hljómsveitin Johnny and the Rest er blásið til veglegrar tónleikaveislu í Tjarnarbíói á föstudagskvöld.

Nýja platan ber heitið Wolves in the Night og hefur að geyma lög á borð við Mama Ganja sem fengið hefur afbragðs viðtökur á öldum ljósvakans síðan í sumar.

Húsið verður opnað klukkan 20.00 en Smári Tarfur mun sjá um að hefja hljóðveisluna með fögrum tónum af sinni alkunnu snilld. En hann hefur verið að koma sterkur inn með nýtt efni þar sem hann siglir á ný mið, einsamall með kassagítarinn og röddina að vopni.

Forsöluverð á midi.is og öðrum söluaðilum er 1.500 krónur en 2.000 krónur við innganginn. Á tónleikunum verður platan á sérstöku tilboðsverði og veglegar veitingar í boði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×