Lífið

Íslendingar í Letterman

Ísland spilaði stórt hlutverk í þætti David Lettermans, Late Show í gær en þar kom John Grant fram ásamt hljómsveit sinni.

Í hljómsveitinni eru Íslendingarnir Kristinn Snær Agnarsson trommuleikari, Jakob Smári Magnússon bassaleikari, gítarleikarinn Pétur Hallgrímsson og Aron Arnarsson þúsundþjalasmiður.

Þeir fluttu lagið Gmf af plötunni Pale Green Ghosts. Grant og félagar eru um þessar mundir á tónleikaferðlagi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×