LeBron og Kevin Durant bestir í desember Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2014 13:15 LeBron James og Kevin Durant. Mynd/NordicPhotos/Getty
LeBron James hjá Miami Heat og Kevin Durant hjá Oklahoma City Thunder voru valdir bestu leikmenn desember-mánaðar í NBA-deildinni í körfubolta. James var sá besti í Austurdeildinni en KD sá besti í Vesturdeildinni.LeBron James fór fyrir liði Miami Heat sem vann 11 af 15 leikjum sínum í desember. Hann varð annar í stigaskori í Austurdeildinni í mánuðinum (24,6 stig í leik), fimmti í skotnýtingu (58,1 prósent), sjötti í bæði stoðsendingum (6,9 í leik) og stolnum boltum (1,64 í leik) og tólfti í fráköstum (8,1 fráköst í leik).Kevin Durant fór fyrir liði Oklahoma City Thunder sem vann 14 af 17 leikjum sínum í desember. KD var annar stigahæsti leikmaður NBA-deildarinnar í desember (29,4 stig í leik) auk þess að taka 9,0 fráköst og gefa 4,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Hann hitti úr 48 prósent skota sinna fyrir utan þriggja stiga línuna og skoraði fimmtán sinnum yfir 20 stig og tíu sinnum yfir 30 stig í þessum sautján leikjum. Kevin Durant var einnig valinn besti leikmaður Vesturdeildarinnar í nóvember en þá var Paul George hjá Indiana Pacers kosinn besti leikmaður Austurdeildarinnar.Aðrir sem komu til greina sem leikmenn mánaðarins voru þeir Kyrie Irving hjá Cleveland Cavaliers, Stephen Curry hjá Golden State Warriors, Paul George og Lance Stephenson hjá Indiana Pacers, Blake Griffin og Chris Paul hjá Los Angeles Clippers, Kevin Love hjá Minnesota Timberwolves, Arron Afflalo hjá Orlando Magic, LaMarcus Aldridge hjá Portland Trailblazers og Kyle Lowry hjá Toronto Raptors.Mynd/NordicPhotos/GettyMynd/NordicPhotos/Getty
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira