Tónlist

„Pöpullinn hafði það ekki jafn gott og við“

Ólöf Skaftadóttir skrifar
AmabAdamA
AmabAdamA
Hljómsveitin AmabAdamA heldur tónleika á Gauknum á morgun, en auk þeirra koma fram Cell 7, Les Ballet Barakan, Rvk Soundsystem, Kött Grá Pjé og Ribbaldarnir.

Hljómsveitin AmabAdamA er meðal annars skipuð þeim Kolfinnu Nikulásdóttur og Steinunni Jónsdóttur.

„AmabAdamA varð til frostaveturinn mikla, 2011, þegar að nokkrir vinir og elskendur ákváðu að spila reggí tónlist til þess að halda á sér hita,“ segir Steinunn, létt í bragði, en kærasti hennar, best þekktur sem Gnúsi Yones, er einnig meðlimur hljómsveitarinnar.

„Síðan þá hefur okkur aldrei orðið kalt. Nú rétt eftir áramót litum við í kringum okkur og tókum eftir því að pöpullinn hafði það ekki eins gott og við. Margir vinir okkar þjást af krónískum hroll og skammdegisvolæði og eru þakin kuldaexemi. Hjörtu þeirra eru sem frosin,“ segir Kolfinna.



Meðlimir sveitarinnar ákváðu að taka málin í sínar hendur.

„Við hóuðum í allt heitasta tónlistarfólk landsins til að halda heljarinnar veislu á Gauknum. Allir sem eru komnir með leið á þessum kulda ættu ekki að missa af þessu, stemmningin verður sjóðandi,“ segir Steinunn að lokum.

Hér að neðan má sjá sveitina flytja þekktan smell í nýjum búningi.







Fleiri fréttir

Sjá meira


×