Tónlist

Hlustaðu á nýja lagið með Beck

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Söngvarinn Beck syngur um einmanaleika í nýja laginu sínu Blue Moon af væntanlegri plötu hans, Morning Phase.

„Ég er svo þreyttur á því að vera einn,“ syngur Beck í byrjun lagsins. Minnir stíll lagsins um margt á stílinn sem einkenndi plötuna Sea Change frá árinu 2002.

Lagið mun heyrast í nýju þáttaröðinni af Girls bráðlega en Morning Phase kemur út 25. febrúar. Er það tólfta plata Beck á ferlinum og sú fyrsta sem hann gefur út síðan árið 2008.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×