Aðalmeðferð í máli Lárusar Welding og Guðmundar Hjaltasonar fór fram í Hæstarétti í dag. Lárus er fyrrverandi forstjóri Glitnis og Guðmundur er fyrrverandi framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis. Báðir krefjast þeir sýknu fyrir Hæstarétti.
Lárus og Guðmundur voru þann 28. desember 2012 sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir brot á 249. gr. almennra hegningalaga fyrir umboðssvik. Þeir voru dæmdir í níu mánaða fangelsi, en þar af voru sex mánuðir skilorðsbundnir til tveggja ára.
Ákæruvaldið hafði farið fram á sex ára fangelsi, en héraðsdómur mat sakir þeirra ekki miklar vegna þess hversu skamman tíma hið ólögmæta ástand varði og hversu lítil fjártjónshætta skapaðist af háttsemi Lárusar og Guðmundar. Hæsta leyfilega refsing, ef sakir eru ekki metnar mjög miklar, eru tvö ár. Ef sakirnar eru taldar sérstaklega alvarlegar má refsingin mest vera sex ára fangelsi.
Sköpuðu Glitni fjártjónshættu
Forsaga málsins er sú að Lárus og Guðmundur, sem sátu báðir í áhættunefnd Glitnis, misnotuðu aðstöðu sína og stefndu bankanum í stórfellda hættu með því að lána Milestone jafnvirði tíu milljarða króna í febrúar 2008, rúmu hálfu ári áður en bankinn féll.
Helmingur lánsins rann til félagsins Vafnings, með handveði í hlutabréfum þess. Félagið átti ekkert nema hálfa milljón í hlutafé svo segja má að lánið hafi í raun verið án trygginga. Þá fékk félagið Svartháfur hinn helming tíu milljarðanna frá bankanum skömmu síðar. Tilgangurinn var að beita fléttu til að greiða niður lán Milestones til bankans í gegnum Vafning.
Í niðurstöðu héraðsdóms segir: „...sannað að ákærðu hafi 8. febrúar 2008 samþykkt að veita Milestone ehf. peningamarkaðslán með ólögmætum hætti að fjárhæð 102.162.470,12 evrur og þannig bakað Glitni banka hf. fjártjónshættu. Með lánveitingunni fóru ákærði, Lárus Welding, sem bankastjóri, og ákærði, Guðmundur Hjaltason, sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs Glitnis banka hf., út fyrir heimildir sínar í störfum sínum og skuldbundu með þeim Glitni banka hf. með ólögmætum hætti. Misnotuðu ákærðu með þessu aðstöðu sína..."
Ráðgert er að Hæstiréttur kveði upp dóm í málinu þann 13. eða 20. febrúar næstkomandi.