Detroit vann San Antonio í fyrsta leik nýja þjálfarans 11. febrúar 2014 08:59
Detroit Pistons gerði sér lítið fyrir og vann San Antonio Spurs, 109-100, í NBA-deildinni í körfubolta í nótt. Svo sannarlega algjör draumabyrjun á þjálfaraferli John Loyer sem hefur lengi beðið eftir þessu tækifæri en hann tók við liðinu eftir að Maurice Cheeks var rekinn í gær. Detroit gekk frá leiknum í fyrstu þremur leikhlutunum og það skipti engu þó sterkt lið San Antonio, sem er í öðru sæti vesturdeildar, tók sig til og vann lokafjórðunginn með ellefu stigum.Brandon Jennings var stigahæstur í liði Detroit með 21 stig en allt byrjunarliðið skoraði yfir 10 stig. Greg Monroe skoraði 15 stig og tók 10 fráköst og miðherjinn Andre Drummond skoraði 14 stig og tók 9 fráköst. Hjá San Antonio var varamaðurinn Marco Belinelli stigahæstur með 20 stig en Spurs-liðið á við meiðslavandræði að stríða um þessar mundir. Houston Rockets er heitasta liðið í NBA-deildinni þessa dagana en það vann sjötta leikinn í röð í nótt er það lagði Minnesota Timberwolves að velli, 107-89.Chandler Parsons skoraði mest fyrir Houston eða 20 stig en allt byrjunarliðið skoraði 14 stig eða meira. Dwight Howard bauð upp á myndarlega tvennu með 18 stigum og 15 fráköstum. Í myndbandinu hér að ofan má sjá Andre Drummond, miðherja Detroit, skila niður hraustlegri hollí-hú troðslu í leiknum í nótt.Úrslit næturinnar:Indiana Pacers - Denver Nuggets 119-80Toronto Raptors - New Orleans Pelicans 108-101Detroit Pistons - San Antonio Spurs 109-100Milwaukee Bucks - Boston Celtics 86-102Minnesota Timberwolves - Houston Rockets 89-107Golden State Warriors - Philadelphia 76ers 123-80Efstu átta í austrinu:1. Indiana 40-112. Miami 35-143. Toronto 27-244. Atlanta 25-245. Washington 25-256. Chicago 25-257. Brooklyn 23-268. Charlotte 22-29Efstu átta í vestrinu:Oklahoma City 41-12San Antonio 37-15Portland 36-15LA Clippers 36-18Houston 35-17Phoenix 30-20Golden State 31-21Dallas 31-21Heildarstöðuna má finna hér.Dwight Howard ver skot JJ Barea upp í stúku:
NBA Mest lesið „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Kolbeinn enn taplaus eftir blóðugan bardaga í Köben Sport Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Körfubolti Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Þór/KA - Víkingur 4-6 | Víkingur Reykjavík á sigurbraut Íslenski boltinn Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Fleiri fréttir Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Sjá meira