
VF: Friðrik Ingi þjálfar bæði Njarðvíkurliðin næsta vetur

Friðrik Ingi var búinn að vera framkvæmdastjóri KKÍ síðan að hann þjálfaði síðasta í úrvalsdeild karla veturinn 2005-06. Friðrik Ingi var þá þjálfari Grindavíkurliðsins eins og fjögur síðustu tímabil hans í þjálfun.
Friðrik Ingi þjálfaði síðast karlalið Njarðvíkur veturinn 1999-2000 en hann gerði Njarðvík að Íslandsmeisturum bæði 1991 og 1998. Grindavík varð síðan Íslandsmeistari undir hans stjórn vorið 1996.
Friðrik Ingi tekur við karlaliðinu af Einari Árna Jóhannssyni en karlaliðið er komið í oddaleik í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Grindavík í úrslitakeppni Dominos-deildar karla.
Friðrik Ingi tekur við kvennaliðinu af Agnari Mar Gunnarssyni en Njarðvík féll úr Dominos-deild kvenna í vetur. Þetta verður ekki í fyrsta sinn sem Friðrik Ingi þjálfað kvennalið Njarðvíkur en hann þjálfaði liðið frá 1988 til 1990.
Friðrik Ingi verður enn einn þjálfarinn sem verður með bæði meistaraflokk karla og kvenna en svo var hátturinn á í vetur hjá Snæfelli, Keflavík og Val auk þess að Sverrir Þór Sverrisson mun þjálfa bæði meistaraflokksliðin hjá Grindavík næsta vetur.
Tengdar fréttir

Jón Arnór: Ég mun sakna Friðriks Inga
Jón Arnór Stefánsson, fremsti körfuboltamaður landsins, er sorgmæddur yfir brotthvarfi Friðriks Inga Rúnarssonar sem framkvæmdastjóra KKÍ

Friðrik Ingi hættur hjá KKÍ
Körfuknattleikssamband Íslands tilkynnti í dag að Friðrik Ingi Rúnarsson muni láta af störfum sem framkvæmdarstjóri sambandsins um mánaðamótin.

Ingi Þór: Með sorglegri fréttum í íþróttaheiminum sem ég hef heyrt
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari meistaraflokka karla og kvenna í körfubolta hjá Snæfelli, skrifar inn fésbókina sína í dag þar sem hann tjáir sig um frétt dagsins í íslenska körfuboltanum.

Umfjöllun og viðtöl: Njarðvík - Grindavík 77-68 | Húnanir neita að fara í sumarfrí
Oddaleik þarf í einvígi Njarðvíkur og Grindavíkur eftir sigur heimamanna í Ljónagryfjunni í kvöld.

Þakklátur fyrir að menn hugsi til mín
Friðrik Ingi Rúnarsson, sem lét af störfum sem framkvæmdastjóri KKÍ í lok janúar, er opinn fyrir því að byrja að þjálfa aftur. Hann þjálfaði síðast Grindavík árið 2006 og gerði liðið að bikarmeisturum. Það var erfitt að þurfa að yfirgefa körfuboltasamband

„Viljum ekki senda enn fleiri reikninga inn á heimili til foreldra“
Formaður KKÍ segir að miklu meira fjármagn þurfi frá ríkisvaldinu til að reka almennilegt afreks- og uppbyggingarstarf í íþróttinni hér á landi. "Stjórnmálamenn þurfa að þora að taka af skarið,“ segir hann.