Þessi nýja virkun er á hálendinu í Suður-Noregi, í sveitarfélaginu Bykle, í jaðri þjóðgarðsins á Harðangursheiði, sem talið er stærsta víðerni meginlands Evrópu. Stíflan er 50 metra há og 150 metra breið og kennd við Sarvsfoss og þótti það áskorun fyrir verktakana að ljúka smíði hennar nú í vor eftir vetrarhörkur.
Stíflan er ekki án umhverfisfórna. Hún þurrkar upp foss, ár og læki, spillir hrygningarstöðvum fiska og sekkur gljúfri. Byrjað var að safna vatni í uppistöðulónið fyrir páska og er fyllingu þess að ljúka þessa dagana.

Jafnframt var rifjað upp að sambærileg stífla hefði ekki verið byggð í Noregi frá því Alta-virkjunin reis fyrir þrjátíu árum. Hörð mótmæli gegn Alta-stíflunni mörkuðu tímamót í réttindabaráttu Sama og náttúruvernd á öllum Norðurlöndunum og eru talin hafa stuðlað að nýrri löggjöf, svo sem um umhverfismat og upplýsingaskyldu stjórnvalda.

Viðbót 13. maí kl. 12.
„Það voru engin mótmæli eða mótmælaaðgerðir í tengslum við þessa uppbyggingu,“ sagði Reidar Ove Mork, framkvæmdastjóri hjá Otra Kraft, sem rekur virkjunina. „Þvert á móti voru þetta aðallega jákvæð viðbrögð, bæði frá tveimur viðkomandi sveitarfélögum og viðkomandi landeigendum. Við náðum ásættanlegum samningum við bæði sveitarfélögin og landeigendur, um skilmála vegna inngripa og áhrifa,“ sagði Reidar Mork í svari við fyrirspurn fréttastofu.