
Segir frásögn Guðrúnar Bryndísar ósanna

Í gærkvöldi var fjallað um grein sem Guðrún Bryndís, sem skipaði annað sæti á framboðslista Framsóknar í Reykjavík fyrr á árinu, birti á vefsíðu Kvennablaðsins. Þar segir hún meðal annars að Benedikt hafi á fundi með henni sagt að þeir sem kæmust í borgarstjórn fyrir hönd flokksins ættu að beita sér gegn byggingu mosku í borginni. Eins og greint hefur verið frá sagði Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti Framsóknarmanna og flugvallarvina, í samtali við Vísi að hún vildi afturkalla lóð þar sem ætlað er að byggja mosku, en þau ummæli hafa verið umdeild.
Yfirlýsing Benedikts í heild sinni hljóðar svo:
Ég harma yfirlýsingu Guðrúnar Bryndísar sem birtist í Kvennablaðinu þann 28. maí sl. þar sem hún er ósönn. Eini tveggja manna fundur okkar átti sér stað þegar mér var falið að fara yfir þá stöðu sem komin var upp eftir að Óskar Bergson hafði stigið til hliðar vegna stöðu framboðsins í skoðanakönnunum og að vænta mætti uppstokkunar á framboðslistanum. Ég tek það fram að ég hef aldrei verið formaður né varaformaður kjörstjórnar eins og haldið er fram.
Ég hef ekki stutt þann málflutning sem nú er viðhafður um afturköllun lóðar múslima eða annara trúfélaga hér á landi. Þvert á móti hef ég andmælt þessum málflutningi við félaga okkar innan Framsóknarflokksins. Ég hafði samband við þingflokksformann Framsóknarflokksins og tók undir hennar sjónarmið auk þess sem ég lýsti andstöðu minni við aðra framámenn flokksins. Ég er kristinn maður og harma þá umræðu sem hefur skapast um fordóma gagnvart öðrum trúarbrögðum. Sú umræða á ekkert skylt við stefnu Framsóknarflokksins.
Blaðamaður Morgunblaðsins átti við mig samtal um daginn og spurði mig hvort fjallað hafi verið um málið í kosningastjórn eða hvort stæði til að fjalla um það. Ég kvað svo ekki vera, né hafi málið ekki verið sett á dagskrá sannleikanum samkvæmt. Eftir á að hyggja hefði ég átt að gera blaðamanninum skýra grein fyrir minni afstöðu og lýsa andúð minni á allri mismunun og fordómum í garð mismunandi trúfélaga. Ég sé mjög mikið eftir því nú að hafa ekki gert það en á þeim tíma taldi ég að mínar prívat skoðanir ættu enga aðkomu að málinu.
Tengdar fréttir

Framsókn prufukeyrir andúð á innflytjendum
Síðasta útspilinu, því eina sem hefur greint Framsóknarflokkinn frá þjóðernispopúlisma, hefur nú verið spilað út.

Sigmundur Davíð vill ekki tjá sig um moskumálið
„Hann vill leyfa oddvitanum í Reykjavík að útskýra hvað hún á við,“ segir Jóhannes.

„Ég túlka þögn forystunnar þannig að ég eigi að fá að sigla þessu skipi í höfn“
Sveinbjörg Birna vill einnig draga til baka lóðaúthlutun til Ásatrúarmanna. Hún segist virða tjáningarfrelsi utanríkisráðherra og þingflokkformanns.

„Er búið að dömpa mér?“
Ef fréttamenn hringja í þig er svarið: "No comment“ við öllu rifjar Guðrún Bryndís Karlsdóttir upp.

„Maður stýrir ekki borg með því að mismuna fólki eftir trúarskoðunum“
Oddvitar allra flokka í Reykjavík sem rætt var við fordæma ummæli oddvita Framsóknarflokksins um byggingu mosku.

Sveinbjörg Birna kæmist í borgarstjórn
Niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar sýna að Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, kæmist í borgarstjórn. Þetta er fyrsta skoðanakönnunin sem birtist síðan hún lét umdeild ummæli um mosku í Reykjavík falla.

Sveinbjörg svarar fyrir sig: „Stjúpmóðir barna minna er múslimi“
Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti lista Framsóknarmanna og flugvallarvina, segir að Íslendingar þurfi að læra af reynslu nágrannalandanna.

Guðrún Bryndís um Framsóknarflokkinn: Moskan átti alltaf að vera kosningamál
Guðrún Bryndís Karlsdóttir segir frá tíma sínum í Framsóknarflokknum í ítarlegri grein.

Sveinbjörg Birna oddviti Lista Framsóknar og flugvallarvina í Reykjavík
Þetta var tilkynnt á kjördæmisþingi Framsóknarmanna í Reykjavík fyrir skömmu.

Oddviti Framsóknar vill afturkalla lóð til múslima
"Ég hef búið í um eitt ár í Sádí Arabíu og byggi þessa skoðun mína ekki á fordómum, heldur reynslu," segir Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir, oddviti lista Framsóknarflokksins og flugvallarvina. Hún telur að á meðan hér á landi sé þjóðkirkja eigi ekki að úthluta lóðar til byggingu mosku eða sambærilegra húsa annarra trúfélaga.

Segist ekki vera sammála oddvita flokksins - Vill þó afturkalla lóðaúthlutun
Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, sem skipar annað sæti Framsóknarflokksins, er á móti því að gefa lóðir til trúfélaga.