Körfubolti

San Antonio pakkaði Oklahoma saman | Myndbönd

Duncan og Green fagna í nótt.
Duncan og Green fagna í nótt. vísir/getty
San Antonio Spurs er komið í 2-0 í einvígi sínu gegn Oklahoma Thunder í úrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar eftir ótrúlegan sigur í nótt.

Spurs vann í nótt 35 stiga sigur, 112-77, í leik þar sem Oklahoma sá hreinlega ekki til sólar. Frábær spilamennska hjá Spurs og strákarnir frá Oklahoma áttu engin svör.

Tony Parker skoraði 22 stig fyrir Spurs en Danny Green átti frábæran leik og skoraði 21 stig. Munaði mikið um þriggja stiga körfurnar hans.

Kevin Durant og Russell Westbrook skoruðu báðir aðeins 15 stig á haus fyrir Oklahoma og þess utan brugðust aukaleikararnir algjörlega.

Serían færist nú yfir til Oklahoma en Thunder þarf að bæta leik sinn mikið ætli það að vinna leik gegn Spurs sem er á mikilli siglingu.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×