Körfubolti

Miller grunar að Rose hafi verið drukkinn í viðtali

Félagarnir saman hjá Indiana.
Félagarnir saman hjá Indiana. vísir/getty
Jalen Rose og Reggie Miller voru liðsfélagar hjá Indiana Pacers frá 1996 til 2002. Rose segir Miller ekki hafa komið vel fram við sig.

"Reggie sagði aldrei neitt jákvætt um mig í fjölmiðlum ólíkt því sem hann gerði við hina strákana. Hann var óspar á hrósið þar," sagði Rose en hann átti líka í deilum við þjálfara liðsins, Larry Brown.

"Ég var mjög ósáttur við hann og það vita flestir. Ég var líka ósáttur við meðferðina sem ég fékk hjá Reggie. Hann sýndi það aldrei í verki að ég væri í einhverjum metum hjá honum."

Rose hefur aldrei farið leynt með að honum þyki gott að fá sér í tána. Í viðtalinu sést að hann er með bjórglas og Miller veltir því fyrir sér hvort hann hafi verið drukkinn í viðtalinu.

"Ég sá þetta viðtal og það virtist vera bjór við hliðina á honum. Hann var því annað hvort drukkinn eða eitthvað illa fyrirkallaður því tími okkar hjá Pacers var frábær," sagði Miller.

"Eina sem ég var ósáttur við hjá honum var er hann sýndi öllum þeim sem ég hafði spilað með vanvirðingu. Ég ætla ekki að taka þátt í þessum leik sem hann er að spila."

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×