Einkennin eru verkir í höfði og maga, ógleði, lystarleysi, niðurgang, þreytu, svima, kvíða, skjálfta, hjartslátt og almenn vanlíðan. Ofan á þetta bætist svo stundum vond samviska og í verstu tilfellunum eftirsjá.
Af hverjum verðum við þunn?
Hausverkurinn og vanlíðanin sem myndast í þynnkunni er ekkert annað en afleiðing af einskonar ofþornun í líkamanum. Ofþornunin verður vegna þess að áfengi hindrar myndum vasopressíns, hormóns sem hefur það hlutverk að halda jafnvægi á vatnsbúskapi líkamans. Við það má segja að vökvinn renni beint í gegnum okkur ásamt þeim vökva sem að líkaminn býr yfir.
Til að skýra þetta frekar er gott að taka smá dæmi:
Ef að einstaklingur drekkur 250 ml af bjór, losar líkaminn sig við 800-1000 ml af vökva. Í þeim umframvökva sem að líkaminn er að losa sig við eru lífsnauðsynleg steinefni og næringarefni sem annars hefðu nýst líkamanum á annan hátt.

Besta ráðið er náttúrulega að hætta drykkju eða allavega minnka hana og drekka nóg af vatni fyrir, á meðan á drykkju stendur og daginn eftir.
Upplagt er að borða banana daginn eftir en þeir eru stútfullir af kalíum sem ýtir undir jákvæð áhrif á vatnsbúskap líkamans.
Egg er svo yndislegur orkugjafi og innihalda cysteine amínósýrurnar en þær hjálpa til við að brjóta niður eiturefnin sem myndast í líkamanum við áfengisdrykkju.