Sköpin skarta sínu fegursta sigga dögg kynfræðingur skrifar 30. júní 2014 14:00 Það má leika sér með munaðarhólinn Mynd/Getty
Ef þú sprangar um nakin að neðan og leiðist þetta náttúrulega útlit þá er ýmislegt hægt að gera til að pæja upp píkuna. Byrjaðu á því að hanna útlit og form brúsksins. Þú getur haldið honum náttúrulegum (eins og Cameron Diaz), snyrt með skærum og/eða rakvél, skellt þér í vax þar sem mismikið er fjarlægt eða tekið allt af, nú eða litað hann. Já það eru framleiddir sérstakir litir fyrir píkuhár. Það eru til snyrtistofur sem aðstoða þig við þetta val og geta jafnvel notað ýmis skapalón, s.s. upphafsstafi eða hjarta, og svo litað að vild ef þú ert í þess konar stuði. Því næst er að skella smá bling-i á hana. Þú getur nefnilega „Vajazzleð“ hana. Skelltu á hana nokkrum smart Swarowski kristöllum og pæjan er til í slaginn! Svo ég best veit þá er ekki nein snyrtistofa á Íslandi sem gerir þetta og einhverjar konur hafa verið að kaupa gsm-skart úr verslunum eins og Tiger en það er ekki mælt með því. Það skraut er víst ekki hanna fyrir líkamann og allra síst kynfærin.Frumlegt húðflúrMynd/SkjáskotEkki má svo gleyma því að varalita varirnar (barmana).My Pink Button er varalitur sem hægt er að fá í bleikum eða rauðum og skal berast á barmana svo þeir verði bleikari eða rauðari... Kannski eitt sem er réttast að benda á, svona áður en varan er keypt, við kynferðislega örvun streymir blóð til kynfæra og barmarnir verða rauðari. Notagildi vörunnar er því mögulega frekar takmarkað. Svo má auðvitað skreyta hana á varanlegri hátt með húðflúri. Það eru til margar góðar (og mjög slæmar) hugmyndir að píkuflúri.Hér má hugmyndarflugið fá lausan tauminnMynd/SkjáskotNú ef ekkert af þessu hentar þér þá getur þú bara smellt á hana kollu (e. merkin) og þá er ekkert mál að klæða hana eftir stuði og stemmingu. Svo er líka inni í myndinni að leyfa henni bara að vera eins og hún er, „au natural“.
Heilsa Lífið Mest lesið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Tom Cruise stökk úr þyrlu með myndavél Íslendinga Bíó og sjónvarp „Mökkurinn var þéttur og við fórum í gegnum hann“ Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið María Birta og Elli orðin tveggja barna foreldrar Lífið Innlit í best skipulögðu íbúðina á Selfossi Lífið Fögur fljóð og töfrandi stund í Haukadal Lífið Ný hugsun í heimi brúnkuvara Lífið samstarf Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið