Notkun á snjallsímaforritinu Tinder hefur aukist um 50 prósent í Brasilíu eftir að heimsmeistaramótið í knattspyrnu hófst nú fyrir um hálfum mánuði. Forritið er eins konar stefnumótaapp og gerir það fólki kleift að kynnast á örskotsstundu í gegnum snjallsímann.
Aukningin er rakin til ástleitinna ferðamanna en talið er að um 3.7 milljónir muni leggja leið sína til landsins meðan knattspyrnumótið stendur yfir er fram kemur í frétt Business Insider um málið.
Forritið kom á markað haustið 2012 og hefur hægt og bítandi sótt í sig veðrið en notendur þess eru nú um 10 milljón talsins. Flestir þeirra eru í Bandaríkjunum og Bretlandi en hlutdeild Brasilíu hefur aukist mikið á síðustu mánuðum og eru Brasilíumenn nú þriðji fjölmennasti notendahópurinn.
Tinder og íþróttamót virðast haldast í hendur en íþróttafólk á vetrarólympíuleikunum í Sotsjí í febrúar voru einnig miklir aðdáendur forritsins.
Bandaríska snjóbrettakonan Jamie Anderson sagði meðal annars í samtali við US Weekly að hún hafi neyðst til að eyða aðgangnum sínum svo að hún gæti einbeitt sér að leikunum. Það væru bókstaflega allir keppendur í Sotsjí á Tinder.
Forritið er ekki flókið í notkun en það gefur fólki færi á því að kynnast innbyrðis, svo framarlega sem báðir aðilar sýni áhuga með því að smella á svokallaðan like-hnapp.
Ef tveir einstaklingar smella á like-hnappinn hvor hjá öðrum kemur upp melding um að aðilarnir eigi saman og þá opnast spjallgluggi sem gefur fólki færi á því að hefja samræður sín á milli.
Tinder er þó ekki eina stefnumótaforritið sem hefur fundið fyrir aukinni notkun í kjölfar heimsmeistaramótsins í knattspyrnu. Gindr, samskonar forrit fyrir sam- og tvíkynhneigða karlmenn, hefur verið ræst 31 prósenti oftar í Brasilíu á liðnum vikum en í meðalmánuði.
