Nýta breska ríkisstyrki til að reisa vindmyllur

Í frétt norska Aftenposten kemur fram að breska ríkið tryggir Statoil og Statkraft ákveðið lágmarksverð fyrir orkuna í 15 ár, sem svarar 27 krónum íslenskum fyrir kílóvattstund í heildsölu. Það verð er í dag um það bil þrefalt hærra en markaðsverð fyrir raforku í Bretlandi og sjö- til áttfalt hærra en það verð sem fyrirtækin gætu búist við að fá fyrir raforkuna ef þau seldu hana til Skandinavíu. Mismuninn á markaðsverði og lágmarksverðinu greiðir breska ríkið.
Stavanger Aftenblad, sem einnig fjallar um málið, segir að breska ríkið tryggi norsku vindmyllunum þannig tekjur á næstu fimmtán árum sem svarar 730 milljörðum íslenskra króna. Heildarfjárfestingin er talin nema 270 milljörðum króna.
Sama styrkjakerfi er talið geta tryggt umtalsverðan hagnað af raforkusölu frá Íslandi til Bretlandseyja um sæstreng.
Tengdar fréttir

Ræðir sæstreng við breskan kollega sinn
Ragnheiður Elín Árnadóttir ræðir við orkumálaráðherra Bretlands um sæstrengsverkefnið í næsta mánuði. Ráðherra vill að forræði verkefnisins færist alfarið til stjórnvalda. Vinna verkefnastjórnar Rammaáætlunar veldur henni vonbrigðum.

Fjármögnun raforkusæstrengs komin á fullan skrið
Fjármögnun sæstrengs milli Íslands og Bretlands er komin á fullan skrið og er leidd af breskum fjárfestum og fyrrverandi orkumálaráðherra Bretlands. Framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun segir að beðið sé eftir samkomulagi stjórnvalda þessara landa.

Norðmenn fjárfesta í vindorku í Bretlandi
Norsku ríkisfyrirtækin Statoil og Statkraft hafa ákveðið að reisa 67 vindmyllur úti fyrir ströndum Norfolk í Bretlandi.

Rætt við fjárfesta um lagningu raforkusæstrengs til Bretlands
Breskur fjárfestir, Edi Truell, vinnur nú að því að afla fjár hjá fjárfestum til þess að leggja sæstreng frá Íslandi til Bretlands sem flutt getur nægilegt rafmagn til að skaffa tveimur milljónum heimila orku.

Vilja sæstrenginn fyrir 2020, fjárfestar mjög áhugasamir
Þróunarstjóri helsta raforkufyrirtækis Bretlands segir að sæstrengur milli Íslands og Bretlands geti verið tilbúinn innan sjö ára og hvetur stjórnvöld ríkjanna til að hefja nú þegar formlegar viðræður um verkefnið.