Veiði

Stóri júlístraumurinn skilaði litlu í laxveiðiárnar

Karl Lúðvíksson skrifar
Veiðin í Eystri Rangá og Blöndu er búin að vera góð en annars er sumarið búið að vera afleitt í laxveiðiánum
Veiðin í Eystri Rangá og Blöndu er búin að vera góð en annars er sumarið búið að vera afleitt í laxveiðiánum
Stóri júlístraumurinn sem veiðimenn biðu eftir og vonuðu að skilaði auknum göngum í árnar gerði afar lítið og staðan er sú að veiðin á þessu ári er ein sú lélegasta frá upphafi.

Sumarið 2012 var slæmt en þetta sumar er bara verra og það átti engin von á því eftir frábært sumar 2013.  En þetta er sem betur fer ekki algilt því veiðin í Blöndu er búin að vera mjög góð og eins er veiðin í Eystri Rangá betri en í fyrra þrátt fyrir að smálaxinn vanti þar ennþá.  Bestu árnar núna koma líklega til með að ná meðalári og rétt það en þær sem eru að eiga slæmt sumar verða kannski með 50% af meðalveiði síðustu 10 ára ef þær ná því.  Enn og aftur er horft til ástands sjávar og spurt er "Hvaða áhrifavaldar í hafinu valda þessum skakkaföllum" því varla er hægt að horfa til ánna því seiðabúskapur þeirra var með miklum ágætum í fyrra.  Vorið var samt heldur kalt og það getur vissulega haft einhve áhrif en það er samt ekki alveg vitað.

Ef við skoðum aðeins vikuveiðina þá veiddust 267 laxar í Blöndu, 171 lax í Þverá og Kjarrá, 141 lax í Norðurá, 125 laxar í Miðfjarðará og 75 laxar í Elliðaánum.  Einhverjir horfa samt til ársins 2007 þar sem göngur komu mjög seint í árnar og skiluðu samt af sér góðu ári.  Vissulega er það vonarglæta og eflaust allir veiðimenn sem halda í vonina.  Góðu fréttirnar eru aftur á móti þær að vatnaveiðin og almennt silungsveiðin er búin að vera frábær í sumar og þeir sem hafa verið að núlla í ánum hafa oft farið í næsta vatn við ánna, fyllt einhverja poka af silung til að koma þó heim með eitthvað.

Topp 10 listinn frá Landssambandi Veiðifélaga lítur annars svona út:



VeiðivatnDagsetningHeildarveiðiStangafjöldiLokatölur 2013
Blanda16. 7. 2014882142611
Þverá + Kjarará16. 7. 2014505143373
Norðurá16. 7. 2014470153351
Eystri-Rangá16. 7. 2014363184797
Miðfjarðará16. 7. 2014328103667
Haffjarðará16. 7. 201428562158
Laxá í Aðaldal16. 7. 2014208181009
Laxá á Ásum16. 7. 201420121062
Elliðaárnar.16. 7. 201420061145
Ytri-Rangá & Hólsá, vesturbakki.16. 7. 2014189205461





×