Landhernaður Ísraela hafinn Atli Ísleifsson skrifar 13. júlí 2014 22:33 Að sögn talsmanns Sameinuðu þjóðanna hafa 17 þúsund manns leitað skjóls í neyðarskýlum, en loftárásir Ísraelshers standa nú yfir sjötta daginn í röð. Vísir/AFP
Þúsundir Palestínumanna flýja nú norðurhluta Gaza-strandarinnar eftir að Ísraelsstjórn varaði við að herinn myndi ráðast gegn stöðum á svæðinu í tilraun til að stöðva eldflaugaárásir á landið. Að sögn talsmanns Sameinuðu þjóðanna hafa 17 þúsund manns leitað skjóls í neyðarskýlum, en loftárásir Ísraelshers standa nú yfir sjötta daginn í röð. Á vef BBC segir að ísraelskar hersveitir hafi gert áhlaup á eldflaugaskotpalla í norðurhluta Gaza í að því er virðist fyrstu landhernaðaraðgerð hersins í þessari hernaðarlotu. Að sögn heilbrigðisyfirvalda á Gaza hafa 159 Palestínumenn látist frá því að loftárásir Ísraelsmanna hófust á þriðjudag. Meðal hinna látnu eru sautján meðlimir sömu fjölskyldunnar sem létust í loftárás á laugardagskvöld. Ísraelsstjórn segist ráðast gegn herskáum Hamas-liðum og stöðum þar sem hryðjuverk eru skipulögð, þar á meðal heimili háttsettra og herskárra Hamas-liða. Sameinuðu þjóðirnar áætla hins vegar að 77 prósent hinna fallinna hafi verið óbreyttir borgarar. Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna hafa hvatt til vopnahlés og að friðarviðræður verði teknar upp að nýju þegar í stað.
Gasa Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Erlent Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Erlent Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag Innlent Lá á þakplötu þegar hann hringdi í Neyðarlínuna Veður Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira