Hafa skal í huga að allar fjárhæðir sem hér eftir eru nefndar eru reiknaðar eftir að Youtube tekur til sín 45% hagnaðarins sem fæst í gegnum auglýsingar.
1. sæti
Sá sem efst á listanum trónir er Svíi nokkur að nafni Felix Kjellberg. Hann er eflaust betur þekktur meðal lesenda undir netnafni sínu, PewDiePie.
PewDiePie tekur upp myndbönd af sjálfum sér að spila ýmsa vinsæla en stundum óþekkta tölvuleiki. Felix er með rúma 29 milljónir áskrifenda á Youtube. Summa allra áhorfa á öll hans myndbönd nær rúmum 5.3 milljörðum.
Samkvæmt útreikningum Social Blade eru tekjur Felix í mesta lagi heill milljarður króna, eða 8.5 milljónir bandaríkjadala.
2. - 3. sæti
Annað og þriðja sæti verma rásirnar BluCollection og DisneyCollectorBR. Þessar tvær rásir birta myndbönd þar sem ýmis leikföng eru tekin úr pakkningum sínum (svokölluð "unboxing" myndbönd).
Foreldrum barna finnst hentugt að smella myndböndum rásanna á iPad-inn eða snjallsímann ef barninu leiðist, þar eð leikfangaskoðunin er í miklu uppáhaldi hjá yngri kynslóðinni.
DisneyCollectorBR er með rúmar fimm milljónir bandaríkjadala (580 milljónir króna) í árstekjur, meðan BluCollection er með 6,4 milljónir dollara (737 milljónir króna).
4. sæti
Í fjórða sæti sitja bandarísku vinirnir Ian Hecox og Anthony Padilla með Youtuberásina Smosh.
Smosh framleiðir fyrst og fremst grínmyndbönd, en eftir að félagarnir öðluðust internetvinsældir hafa þeir breikkað sig út. Nú gera þeir einnig tölvuleikjamyndbönd og framleiða tónlistarmyndbönd sem oft eru þó brandarar í sjálfum sér.
Smosh eru samtals með rúmlega 18 milljón áskrifendur og summa áhorfa nær 3.4 milljörðum. Tekjur þeirra ná í mesta lagi heilum 4.5 milljónum bandaríkjadala árlega, eða um hálfum milljarði króna.
5. sæti
Fimmta sætið hlýtur svo Adam Dahlberg, betur þekktur sem SkyDoesMinecraft. Adam spilar tölvuleikinn geysivinsæla Minecraft í myndböndum sínum, og hefur gefið út heil 902 slík myndskeið.
Áskrifendur Dahlberg eru tíu milljón talsins, og heildarsumma áhorfa nær tveimur milljörðum.
Árstekjur Dahlberg nema rúmum þremur milljónum bandaríkjadala. Nemur sú upphæð einhverjum 350 milljónum íslenskra króna.
Greinilegt er að mikið fjármagn liggur í myndbandsframleiðslu á veraldarvefnum. Hafi lesendur áhuga má hér fyrir neðan sjá myndband eftir tekjukóng Youtube, en athugið að orðbragð Felix er ekki alltaf til fyrirmyndar.