Segir Rússa hafa rifið reglubókina Stefán Ó. Jónsson skrifar 2. ágúst 2014 12:00
David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, fór fram á að NATO endurskoðaði samband sitt við Rússland í kjölfar „ólöglegra aðgerða“ Rússa í Úkraínu.Þetta kom fram í bréfi Camerons sem hann sendi leiðtogum NATO-ríkjanna nú í morgun. Í bréfinu segir hann Rússa líta á NATO-ríkin sem fjandmenn sína og að sambandið verði að vera betur í stakk búið til að mæta hvers kyns ógnum. „Við verðum að horfa í augu við það að samvinna síðustu ára er ekki lengur uppi á borðinu eftir ólöglegar aðgerðir Rússa í umdæmi NATO og að við verðum að endurskoða reglurnar sem lúta að samskiptum okkar við Rússland,“ segir forsætisráðherra í bréfinu. Ummæli Camerons koma í kjölfar skýrslu sem unnin var af nefnd á vegum breska þingsins. Þar kom meðal annars fram að framferði Rússa í austurhluta Úkraínu vekti alvarlegar spurningar um getu NATO til að bregðast við árásum á hendur aðildarríkja sambandsins. Atburðarás síðustu mánaða í Úkraínu „hafi opinberað illviðráðanlega vankanta á viðbragðsgetu NATO, sem erfitt verður að laga,“ sagði nefndin. Cameron sagði einnig að heimurinn væri óútreiknanlegri nú en áður eftir að „Rússland reif reglubókina með ólöglegri innlimun Krímskagans.“
MH17 Mest lesið Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Syrgja starfsmann sem lést í slysi Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Kannast ekki við lýsingar Jóns Innlent Fleiri fréttir Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Sjá meira